Jæja, þetta er búin að vera skrautleg helgi hér fyrir sunnan. Reyndar ekkert svo rosalega skrautleg en skemmtileg samt. Á fimmtudaginn fórum við Kári og Rósa á minningartónleikana hans Arnar. Myndum sem spönnuðu hina stuttu ævi var varpað á vegginn og voru börn, dýr eða brosandi fólk með Erni á flestum þeirra; ekki kom það nú samt á óvart. Bubbi söng líka frekar væmið lag um Venus (æ mér finnst hann Bubbi yfirleitt frekar væminn og einfaldur) en þó kitlaði það fram nokkur tár, allavega hjá mér. Heldur brá mér þó í brún þegar freknurnar völsuðu inn, en sem betur fer sáu þær fljótlega að sér og létu sig hverfa.
Á föstudaginn var svo djammað pínu heima hjá Rósu, með viðliti hjá Þórunni og Önnu. Laugardagskvöldið var öllu menningarlegra, en við Rósa, Kári, Mútta, Hákon og Alda og Gunnar Smári fórum á Koddamanninn á litla sviðinu í Þjóðleikhúsinu. Eitthvað voru þó skoðanir skiptar um ágæti þessa verks. Kára fannst líklega mest til þess koma, en sjálf var ég ekkert hrifnumin af frammistöðu Rúnars (þó svo ég hafi heldur ekkert beint út á hana að setja). Eftir leikhús var stefnan sett á að drekka sem mest á sem stystum tíma (aka farið í drykkjuleik), og var þeirri iðju haldið áfram heima hjá Þórunni. Það tók hins vegar talsverðan tíma að komast út úr húsi (elsku Þórunn... ;) ) og eftir tvær biðraðir, einn þjóðverja og engan bjór var skellt í sig pylsu og tölt heim á leið.
Nú er ég komin aftur til Akureyrar og er, í fyrsta skipti síðan ég flutti, að upplifa þá tilfinningu að ég sé komin 'heim'... Það er ágætt.

1 Comments:
Blogga meira?
Hvernig er það, gæti ég platað þig í smá hjálp þegar ég byrja á ritgerðinni fyrir fíluna?
Post a Comment
<< Home