Friday, March 04, 2005

Fréttablaðið, föstudagurinn 4. mars - "Allt"

En hvað það er gott hjá Fréttablaðinu að vekja athygli á því að til séu menn eins og Bragi Ó., sem hjálpa konunni sinni við eldamennskuna. Ég sem í sakleysi mínu hélt að greyin þyrftu að sjá um þetta alfarið sjálfar! Ég hvet Fréttablaðið til að birta fleiri svona sögur - eru t.d. einhverjir metrómenn þarna úti sem hjálpa konunni sinni að laga til eða passa börnin? Eða röskar konur sem eru duglegar að negla í veggi og e.t.v. slá grasið á sumrin?
Þetta fólk ætti að láta heyra í sér - jafnréttisbaráttan veltur á því!

1 Comments:

Blogger Sif said...

Þvílík dásemd. Svo elskulegur þessi Bragi!

3:07 PM  

Post a Comment

<< Home